Stokkseyrarsel eystra

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Bæjarhóllinn er stór, 50 m AV og
62 m NS og er hann um 3 m hár. Við norðurvegg hólsins er veggurinn greinilegastur
og við hann er tóft sem er 6 m á breidd og 13 m á lengd. Veggirnir eru
hæstir við austurvegg tóftarinnar um 2 m. Vesturveggurinn er mikið hruninn.
Leifar af bárujárnsþaki og spýtum eru í tóftinni. Við NA horn bæjarhólsins
er önnur tóft. Tóftin er 3 m á breidd og 5 m á lengd og er niðurgrafinn
um 1 m. Við austurvegg hennar hefur verið steypt í hleðslurnar og hefur
dyr verið á austurhliðinni því um 0,5 sm op er á steypunni og hleðslunni
bak við. Norðurveggurinn er um 2 m hár en er byrjaður að hrynja, hleðslan
er mosavaxinn. Við suðurvegg er hleðslan mest 4 umför. Í miðri tóftinni
liggur steyptur skorsteinn í tveimur hlutum. Um 5 m ofar eru fleiri skorsteinsbrot
jafnframt í tveimur hlutum. Miðað við hvernig skorsteinsbrotin liggja hafa
skorsteinarnir verið tveir. Síðari skorsteinsbrotin eru jafnframt í miðri
tóft. Útlínur tóftarinnar eru fremur óljósar nema suðurveggurinn, þar er
hár veggur um 4 umför og eru hleðslurnar mosavaxnar. Við austurhlið bæjarhólsins
liggur einföld steinaröð meðfram hólnum og þar er steypt stétt 2 m á breidd
og 1 m á hæð, glittir í hleðslur undir stéttinni. Mikið rof er ofan á bæjarhólnum
eftir ágang hesta. Brunnur [4] er um 10 m frá NA horni bæjarhólsins. Matjurtagarður
[8] liggur við suður og austurhlið bæjarhólsins. Bæjarhóllinn er mikið
hruninn á suðurhliðinn þar glittir aðeins í hleðslur hér og þar. Vestur
hliðin er ógreinilegust en þar er mikið rof. Mikið af járnleifum eru á
víð og dreif á bæjarhólnum. Ýmsir gripir fundust á eða við bæjarhólinn
þar á meðal var járnpottur, þakflísar, skófluhaus, keramik, flaska og járnkeðjur.
Bæjarhóll Eystra Stokkseyrarsels
er um 60 m austur frá íbúðarhúsum Vestra Stokkseyrarsels. Bæjarhóllinn
er jafnframt um 40 m suður frá útihúsi nr. 2 og um 30 m SV frá útihúsi
nr. 3.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Stokkseyrarsel eystra
Safnnúmer
Safnnúmer B: 165542-1
Stærð
Lengd: 62 m
Breidd: 50 m
Staður
Staður: Eystra-Stokkseyrarsel, 825-Stokkseyri, Sveitarfélagið Árborg
Aðfangategund
Heimildir
Túnakort [1920]. Eystra Stokkseyrarsel.
Stokkseyrarhreppur, Árnessýsla. Þjóðskjalasafn Íslands.
Upprunastaður
63°52'28.4"N 21°3'41.5"W