Lýsislampi

Lýsislampi af algengri gerð. Stiginn og stíllinn eru nýsmíðaðir af Guðmundi Þorsteinssyni frá Lundi, sem var viðgerðarmaður á Þjóðminjasafninu. Munir nr. 4109 til 4156 eru frá Laxfossi í Stafholtstungum, nema annað sé tekið fram. Þeir voru í eigu Snorra Þorsteinssonar (1853-1932), Guðrúnar Sigurðardóttur (1858-1954) og barna þeirra, er bjuggu á Laxfossi, en þau voru Elísabet (1894-1986), Jón (1896-1989) og Kristín (1888-1981). Snorri og Guðrún tóku við búi á Laxfossi 1887, en Jón bjó þar eftir að móðir hans hætti búskap. Hann bjó til 1981, en þá fór jörðin í eyði.  Halldór Jónas Jónsson afhenti safninu 7/8 1998.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Lýsislampi
Safnnúmer
Safnnúmer A: BB-4138
Staður
Jörð/Lóð: Staður: Laxfoss, 311-Borgarnesi, Borgarbyggð, Stafholtstungur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lýsislampi

Upprunastaður

64°44'19.3"N 21°35'35.3"W