Vasaúr

Varðveitt hjá
Safnahús Borgarfjarðar
Vasaúr koparlitað, 4.6 cm í þvermál, með rómverskum tölustöfum, keðju vantar. Dregið upp með lykli, er fylgir. Skjöldur og skraut á bakhlið. Sekúnduvísi vantar. Á miða innan á bakhlið stendur: Þorsteinn Laxfossi, það verður að þrýsta lyklinum á standinn, þegar dregið er upp. Aftan á miðanum stendur: hreinsun, ný spíralfjöður, nýr steinn, glat. lykill, aðgerð á hjóli. 8.75 Munir nr. 4109 til 4156 eru frá Laxfossi í Stafholtstungum, nema annað sé tekið fram. Þeir voru í eigu Snorra Þorsteinssonar (1853-1932), Guðrúnar Sigurðardóttur (1858-1954) og barna þeirra, er bjuggu á Laxfossi, en þau voru Elísabet (1894-1986), Jón (1896-1989) og Kristín (1888-1981). Snorri og Guðrún tóku við búi á Laxfossi 1887, en Jón bjó þar eftir að móðir hans hætti búskap. Hann bjó til 1981, enÞá fór jörðin í eyði. Afh. 7/8, 1988 af Halldóri J. Jónssyni.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Vasaúr
Safnnúmer
Safnnúmer A: BB-4109
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Vasaúr
