Ferð um Suðurland

„Fyrsti áningarstaðurinn“. Frá vinstri; óþekktur maður, Helga María, Björn Franklín, Halldór, Selma, Margrét og Jón. Ljósmyndasafn úr dánarbúi Guðrúnar Laufeyjar Jónsdóttur (1910 - 2004) sem var ævinlega nefnd Blaka. Ljósmyndir þessar eru frá Blöku og systkinum hennar. Systkini Blöku voru: Björn Franklín (1908 - 1976), hagfræðingur; Halldór Haukur (1912 - 1992), arkitekt og Sigþrúður Selma (1917 - 1987), listfræðingur. Foreldrar þeirra voru Jón Björnsson (1878 - 1949) frá Bæ, sem var lengi kaupmaður í Borgarnesi og Helga María Björnsdóttir (1880 - 1972) frá Svarfhóli. Jón og Helga fluttu í Borgarnes árið 1906, nánar tiltekið í Kaupang (Brákarbraut 11) sem er elsta húsið í Borgarnesi (byggt 1878). Þar stofnuðu þau fjölskyldu og bjuggu þar í fjörutíu ár eða þangað til þau fluttu til Reykjavíkur 1946.

Aðrar upplýsingar

Titill
Titill: Ferð um Suðurland
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2007-35-529
Stærð
8 x 11 cm
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ferðalag
Efnisorð:
Ferðafólk
Efnisorð:
Áning