Kollur, stóll
1966

Varðveitt hjá
Iðnaðarsafnið á Akureyri
Stólkollur, smíðaður hjá Stáliðn, Akureyri. Kollurinn er með fjórar fætur, hvíthúðaðar með tvítum plast töppum á endum. Sessan er ferköntuð, bólstruð og með ljós gulu áklæði úr e.k. plastefni. Fölgrænt blómamynstur á sessu.
Stáliðn var stofanað árið 1966. Fyrirtækið hóf starfsemi sína í Norðurgötu 55. Starfsemin var tvíþætt, yfirbygging bifreiða og framleiðsla stálhúsgagna með sérstakri nylonhúðun. Guðmundur Magnússon stjórnaði því sem sneri að yfirbyggingu bifreiða og Níels Erlingsson stýrði húsgagnaframleiðslunni.
Aðrar upplýsingar
Ártal
Áætlaður aldur frá: 1966
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2026-2
Stærð
47 x 32 x 32 cm
Staður
Framleiðslustaður: Staður: Norðurgata 55, 600-Akureyri, Akureyrarbær, Oddeyri, Ísland
Aðfangategund
Áletrun / Áritun
Áletrun: Stáliðn
Efnisorð / Heiti





