Stuðlaberg

Varðveitt hjá
Hönnunarsafn Íslands
Hægindastóll úr Stuðlaberg sófasetti með upprunalegu áklæði. Sófasettið er hannað af Dagbirti Stígssyni og framleit af Aton húsgögnum.  Hægindastóllinn er gerður úr dökkum viði og er með þykku og breiðu sæti og baki. Það er smá bil á milli sætisins og baksins. Stóllinn er bólstraður á sæti, baki og aftaná sæti með áklæði sem er gult á lit. Á áklæðinu er upphleypt blómamunstur. Stóllinn er með upphækkuðum örmum sem eru líka bólstraðir á efri hlið en á undirhlið armanna er dökkur viður. Undir örmunum og efst á sæti eru eins konar píramídar sem samanstanda af sívalíngslaga viðarbútum sem hefur verið raðað í stigmagnanandi hæðaröð. Sívalingslaga viðarbútum er einnig raðað meðfram síðu baksins. Á stólnum eru fjórir stuttir fætur. 

Aðrar upplýsingar

Höfundur: Dagbjartur Stígsson
Hönnuður:
Dagbjartur Stígsson
Framleiðandi:
Aton
Titill
Verkheiti: Stuðlaberg
Safnnúmer
Safnnúmer A: Hs Safnnúmer B: 2020-6-1
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn listmunaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisinntak: Hægindastóll
Efnisinntak:
Sófasett
Efnisinntak:
Stóll