Trafaöskjur
1730 - 1750

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Trafaöskjur úr viði með útskornu loki. Gripurinn hefur verið saumaður saman með tágarbandi á hliðinni og það sama á við lokið. Botninn og toppurinn á lokinu hafa verið negld á með litlum nöglum. Naglagötin eru þó flest auð og lok og botn hefur verið styrkt með lími. Grænt filtefni er á lokinu innanverðu og í botni öskjunnar. Lítill hnúður er í miðju loki, þó ekki nógu stór til að nota við að lyfta lokinu. Sprunga er þvert yfir lokið.
Þessi saga fylgdi gripnum:
Þær átti Guðbjörg fædd 1731, svo dóttir hennar Kristín kona Gottsveins Jónssonar bónda í (Steinholti segir á miða frá gefanda) Steinsholti í Gnúpverjahreppi. Gottsveinn var faðir Sigurðar Gottsveinssonar er lenti í Kambsráni 1827. En Kristín var móðir Sigurðar og þeirra systkina sem voru átta. Kristín gaf öskjurnar sonardóttur sinni Guðbjörgu Jónsdóttur (Gömlu Guddu) í Mundakoti. Gamla Gudda gaf Jóhönnu Helgadóttur á Bergi á Eyrarbakka öskjurnar eftir sinn dag. Jóhanna Helgadóttir gaf þær Jóni Atla Jónssyni til varðveislu árið 1950. Gefandinn Súsanna Halldórsdóttir var kona Jóns Atla og Jón Gunnar Gíslason sem afhenti gripinn og Jón Atli voru systkinasynir. Jóhanna á Bergi var feiknalega fróð og myndarleg kona og margir vildu eiga hana. Sagt var að í öskjunum væru lengi vel geymd 8 biðilsbréf til Jóhönnu á Bergi sem aldrei giftist.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Súsanna Halldórsdóttir
Ártal
1730 - 1750
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: BÁ
Safnnúmer B: 2009-2
Stærð
10.5 x 23 cm
Lengd: 10.5 Breidd: 23 cm
Staður
Staður: Steinsholt 1, 801-Selfossi, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Eystrihreppur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Trafaöskjur
Upprunastaður
64°4'17.9"N 20°13'6.0"W



