Vatnslitamynd
1925 - 1930

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Vatnslitamynd af Einarhafnarhverfinu á Eyrarbakka, í ramma. Fremst fyrir miðju er Hof sem var æskuheimili gefanda. Myndin mun hafa hangið uppi í Hofi hjá foreldrum Björgvins.
Aftan á myndinni er vélritaður miði þar sem fullyrt sé af listfræðingi að myndlistarmaðurinn hafi verið Agnes Lunn dönsk listakona sem dvaldist í Húsinu sumrin 1902 til 1912. Það er ósennilegt sé myndin borin saman við önnur verk eftir Agnesi Lunn. Auk þess er Nýhöfn, sem er til vinstri á myndinni, byggt 1914 eftir að Agnes Lunn hætti að dvelja á Eyrarbakka. Tilgáta Ingu Láru Baldvinsdóttur er að eyrbekkingurinn Sigurjón Ólafsson myndhöggvari (1908-1981) hafi málað myndina þegar hann var að stíga sín fyrstu spor á braut myndlistarinnar.
Sjá nánar aðfangabók SjmsEyr bls. 59.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Björgvin Jónsson
Ártal
1925 - 1930
Safnnúmer
Safnnúmer A: SE
Safnnúmer B: 1997-1
Stærð
43 x 57 cm
Lengd: 43 Breidd: 57 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Árborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Vatnslitamynd
Upprunastaður
63°51'55.3"N 21°9'28.3"W
