Spilaborð

1916
Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Spilaborð Nielsens faktors á Eyrarbakka, einskonar rekkur á litlum fæti með tveimur slíðrum til að láta í spilin. Efst á því er plata úr fílabeini, á hana er grafið "P.Nielsen 1916 með vinsemd og virðingu V.G." þ.e. Vigfús Guðmundsson frá Engey, var um fjölda ára einn af endurskoðendum við reiknings- hald Eyrarbakkaverslunar og samdi síðar sögu Eyrarbakka. Sent frá Kaupmannahöfn ásamt myndum frá Eyrarbakka. Spilaborðið notaði Nielsen eftir að hann fékk slag og lamaðist að mestu. Hann spilaði lomber.  Líklega er sá sem sendi frá Kaupmannahöfn Peter Nielsen sonur Karenar og Jens D. Nielsen sem voru búsett í Húsinu 1911-1918. Peter Nielsen var bróðir Eugeniu I. Nielsen sem skráður hefur verið gefandi. Hann var búsettur lengi í Kaupmannahöfn.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1916
Safnnúmer
Safnnúmer A: BÁ-615
Staður
Staður: Húsið, Assistentahúsið, Eyrargata 50, 820-Eyrarbakka, Sveitarfélagið Árborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Spilaborð
Efnisorð:
Spilastandur

Upprunastaður

63°51'52.7"N 21°9'14.4"W