Karlmaður

01.01.1908 - 01.01.1910
Finnur Gíslason situr fyrir hjá Carl Olafson sem hafði ljósmyndastofu í Mósundi 3 í Hafnarfirði á árunum 1908-1910. Magnús Jónsson f.v. minjavörður í Hafnarfirði skrifaði um Finn Gíslason í bók sinni "Bær í byrjun aldar": " Finnshús, eða Finnshóll. Árið 1840, eða skömmu áður , fluttist á þennan stað sunnan af Möl (35), feðgarnir Gísli Þormóðsson -d.1892- og Finnur sonur hans. Húsið sem þarna stóð síðar og Finnur var í til æviloka, var talið Reykjavíkurvegur 4. Það er nú í öðrum bæjarhluta. Finnur var fæddur 1857 að Hjálmholti í Flóa og fluttist til Hafnarfjarðar frá Lamastöðum þar. Árið 1888 kvæntist hann Sólveigur Sveinsdóttur, sem þá var ekkja, fædd í Neðri-Lág við Látravík á Snæfellsnesi 1851, en hafði flutst til Hafnarfjarðar 1887 frá Reykja´vik. Þessi hjón voru barnlaus en hjá þeim voru fósturdætur þeirra, Systurdóttir Sólveigar, Ragnhildur Egilsdóttir, sem árið 1904 giftist Birni Helgasyni skipstjóna og Guðríður Guðmundsdóttir sem gift er Birni Guðmundssyni á Sleðbrjótsseli á Fljótsdalhéraði. Finnur stundaði m.a. seglasaum. Hann dó 1937 en sólveig 1939. Hjá þeim leigðu , þegar hér um ræðir, tveir ungir verslunarmenn, Svend Hall og Carl Finsen. Svend Jónasson Hall var fæddur í Reykja´vik 1879, fluttist þangað aftur kvæntist Guðrúnu Aðalsteinsdóttur og varð m.a. forstjóri Trolle og Tothe".

Aðrar upplýsingar

Ártal
01.01.1908 - 01.01.1910
Safnnúmer
Safnnúmer A: BH 0005-6169
Staður
Staður: Mjósund 3, 220-Hafnarfirði, Hafnarfjarðarkaupstaður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Alm. myndaskrá
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Karlmaður
Myndefni:
Ljósmyndastofa

Upprunastaður

64°4'3.9"N 21°57'13.5"W