Salthólmavík

1957 - 1962
Varðveitt hjá
Byggðasafn Dalamanna
Gamli verkamannabústaðurinn á Sandinum (Salthólmavík). Til vinstri var smjörstofan. Þar var handsnúinn hnoðari. Smjörið var síðan sett í mót og pappír um síðan um hvert stykki. Að lokum var raðað í kassa, sent suður og selt. Í sláturtíðinni var smjörstofan notuð sem eldhús og sofið í kojum í húsinu til hægri. Við Fíatinn hans Lárusar stendur Ásthildur Magnúsdóttir (Ásta) og heldur á Láru Sigurðardóttur í Tjaldanesi. Inni í bílnum er Ketilbjörn Magnússon (Katli) í Tjaldanesi.

Aðrar upplýsingar

Titill
Salthólmavík
Ártal
Aldur: 1957 - 1962
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-3-545
Staður
Örnefni: Salthólmavík, Dalabyggð, Saurbær, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn myndaskrá

Upprunastaður

64°7'3.3"N 21°48'38.9"W