Hrossabrestur

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Hrossabrestur. Sívalt tréhandfang. Á það kemur flöt spýta sem myndar hring með gati í miðjunni og gengur upp á handfangið. Þar á eftir kemur gróft tré tannhjól. Ofan á tannhjólið kemur önnur spýta eins og hin fyrri, með fangamerkinu G.I. Þar á milli eru fjögur þverbönd,
sem eru bæði utan á og innan í. Þunn tréfjöl rúnuð í annan endann gengur inn á milli bitanna og í tannhjólið. Hrossabrestur, frá Guðmundi Ísleifssyni á Háeyri á Eyrarbakka. Var notaður til að fæla með hross. Guðmundur var frægur sjósóknari, kaupmaður og bóndi á Háeyri. Sögur lifa um að hann hafi á efri árum löngum staðið á tröppum húss síns og sveiflaði þá gjarnan hrossabrestinum.
Aðrar upplýsingar
Guðmundur Ísleifsson, Notandi
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: SE
Safnnúmer B: 1984-574
Stærð
32 x 32 x 0 cm
Lengd: 32 Breidd: 32 Hæð: 0 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Árborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hrossabrestur
