Ljár

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
"4. janúar 1969. Afhent af Þjóðminjaverði: Sláttuljár fundinn í Fossárdal í Þjórsárdal af Sigurjóni Þ. Erlingssyni á Selfossi fyrir 3-4 árum. Ljárinn er að öllum líkindum frá því fyrir 1104 en þá fór Þjórsárdalur eyði. Eftir ósk Sigurjóns og samþykki Þjóðminjavarðar er ljárinn afhentur í Byggðasafn Árnesinga." (Aðfangabók) Ljárinn er ryðgaður, 35 sm langur. Sigurjón Þ. Erlingsson múrarameistari á Selfossi fann ljáinn um 1966. Hann skrifar: „Fundinn ljár í Þjórsárdal Það hefir verið sumarið 1966 eða ´67 að ég og Sigurður sonur minn vorum á ferð í Þjórsárdal. Líklegast er að við höfum verið að leita að álitlegu berjalandi. Ég ók upp svonefnt Reykholt sem er hæðarrani utan við Fossá í suðvestur að sjá frá Stöng. Þar endaði bílslóðinn. Við vildum skoða okkur betur um og gengum áfram upp með ánni yfir dálítið sléttlendi nær ógróið. Þar við ána komum við að mikilli vikurdyngju með ljósum vikri vafalaust frá gosinu mikla 1104. Fast við ána hafði fokið eða runnið frá sláttuljá sem lá fast við ána. Ég sá strax að þarna hlaut að vera um merkisgrip að ræða. Þarna hefir auðvitað verið engjaland Stangarbónda á árbakkanum. Ég sem gamall sveitamaður hafði slegið heilmikið með orfi og ljá á mínum uppvaxtarárum. Þessi ljár var nokkru styttri en þeir ljáir sem notaðir voru í mínu ungdæmi, en var þó bersýnilega heill og óbrotinn. Hann var töluvert slitinn. Mér fannst sjálfsagt að hirða ljáinn, fannst hann eiga best heima í Byggðasafni Árnesinga og afhenti hann þangað. Það má til gamans geta sér þess til að Gaukur bóndi í Stöng  hefir verið þarna við slátt þegar hann gat ekki stillt sig um að eiga ástarfund með húsfreyjunni á Steinastöðum sem var næsti bær sunnan við Stöng. Til er gömul þjóðvísa lögð í munn húsfreyju á Steinastöðum:  „Önnur var mín ævin, þegar Gaukur bjó í Stöng. Þá var ei til Steinastaða leiðin löng.“ Svo sem kunnugt er sátu óvinir Gauks fyrir honum og drápu við Gaukshöfða. Skrifað í maí 2023, Sigurjón Þ. Erlingsson.“

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: BÁ-1058
Stærð
36.5 x 0 cm Lengd: 36.5 cm
Staður
Staður: Fossá, Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ljár