Teikning, listræn

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Teikning. Mynd innrömmuð í svartan grannan ramma, stærð 24,0 x 35,0 sm. Teiknimynd eftir Sigríði Tómasdóttur í Brattholti Biskupstungum fædd árið 1871 og dáin 1957. Myndin er blýantsteikning og er af gulviðarhríslu. Skrifað er í vinstra hornið að neðan: „Gulviðarhrísla afhöggin.“ Sigríður gerði myndina er hún var unglingsstúlka og smali í Brattholti, og sat yfir kvíaám í haga. Fleiri myndir gerði hún á yngri árum, sem nú eru víst flestar glataðar. Enda hætti þessi listræna merkiskona með öllu, að fást við dráttlist fyrir miðjan aldur. Myndina átti lengi Guðrún Þórðardóttir frá Hólum í Biskupstungum, síðar lengi í Hafnarfirði, frænka Sigríðar, móðir Steinþórs er gaf.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: BÁ-1073
Stærð
24 x 35 cm Lengd: 24 Breidd: 35 cm
Staður
Staður: Brattholt, 801-Selfossi, Bláskógabyggð, Biskupstungur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

64°18'1.1"N 20°9'56.1"W