Stóll

01.10.1892
Elín Guðmundsdóttir, fædd 19. apríl 1885 í Hnífsdal. Foreldrar Elínar voru Guðmundur Sveinsson, kaupmaður og útgerðarmaður í Hnífsdal, og Ingibjörg Kristjánsdóttir, kona hans. Myndin er tekin 1. október 1892. Elín giftist Karli Olgeirssyni, verslunarstjóra Edinborgarverslunar á Ísafirði, 5. apríl 1903 og gekk í kjölfarið undir nafninu Elín Olgeirsson. Sonur þeirra sem upp komst, fæddur 1908, var Guðmundur Kristján Karlsson. Elín ökklabrotnaði í nóvember 1911, og gekk illa að ráða úr því. Fóturinn var tekinn af, en allt kom fyrir ekki: Hún lést 19. desember 1911, að því er virðist vegna hjartaáfalls. Frá andláti hennar var greint í bæði Þjóðviljanum unga og Vestra á Þorláksmessu.

Aðrar upplýsingar

Ártal
01.10.1892
Safnnúmer
Safnnúmer A: BP-1892-463
Staður
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Björn Pálsson ljósmyndari
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Stóll
Myndefni:
Telpa
Heimildir
Skrá Björns Pálssonar, 1891-1916. Ari Gíslason og V. B. Valdimarsson. Vestfirzkar ættir: Arnardalsætt I. Reykjavík: V. B. Valdimarsson, 1959. „Frú Elín Olgeirsson“. Vestri. 23. desember 1911. „Mannalát“. Þjóðviljinn ungi. 23. desember 1911. „Ministerialbók fyrir Eyrarprestakall í Skutulsfirði um árin 1898–1909“, e.d. Eyri í Skutulsfirði / Ísafjörður - prestakall 0000 BA/4-1. ÞÍ. „Ministerialbók fyrir Ísafjarðarsókn og Hólssókn um árin 1910–1919“, e.d. Eyri í Skutulsfirði / Ísafjörður - prestakall 0000 BA/5-1. ÞÍ. „Ministerialbók Skutulsfjarðareyrarprestakalls byrjuð með árinu 1877“, e.d. Eyri í Skutulsfirði / Ísafjörður - prestakall 0000 BA/3-1. ÞÍ.