Húfa, sem höfuðfat
29.08.1892

Varðveitt hjá
Ljósmyndasafnið Ísafirði
Á myndinni eru Magnús Guðjón Haraldsson (1867–1895) og Kristján Torfason (1871–1932).
Kristján Torfason, fæddur 12. janúar 1871 á Flateyri í Önundarfirði, var sonur Torfa Halldórssonar, verslunarstjóra á Flateyri, og Maríu Össurardóttur. Kristján bjó síðar lengi á Sólbakka. Kristján hrinti ýmsum stórum verkefnum í framkvæmd, en gerði áætlanir um enn stærri, en sem dæmi má nefna að hann rak surtarbrandsnámu í landi Botns í Súgandafirði og lagði á ráðin um járnvinnslu í Önundarfirði.
Magnús Guðjón Haraldsson, fæddur þann 29. júlí 1867 á Suðureyri í Tálknafirði, var sonur Haraldar Ásgeirsen, síðar verslunarmanns á Ísafirði, og Sigríðar Markúsdóttur. Í dagbók Björns Pálssonar er hann nefndur Guðjón Ásgeirsson, og hann virðist jafnan hafa gengið undir nafninu Guðjón H. Ásgeirsen í samtímaheimildum, þó skírnarnafnið sé notað í manntölum.
Báðir þessir menn létust á sjó: Guðjón Ásgeirsen drukknaði í Sundunum, milli Skutulsfjarðareyrar og Kirkjubólshlíðar, þann 5. september 1895, en Kristján Torfason varð bráðkvaddur um borð í Gullfossi rétt um það leyti sem skipið lagðist að bryggju á Flateyri, þann 28. september 1932.
Aðrar upplýsingar
Ártal
29.08.1892
Safnnúmer
Safnnúmer A: BP-1892-440
Staður
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Björn Pálsson ljósmyndari
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Skrá Björns Pálssonar, 1891-1916.
Eyjólfur Jónsson. Vestfirzkir slysadagar: 1880–1940. Fyrra bindi. Ísafjörður: Sögufélag Ísfirðinga, 1996.
Guðm. G. Bárðarson. „Um surtarbrand“. Andvari, e.d.
„Ministerialbók Holts og Kirkjubóls sókna í Önundarfirði 1849–1897“, e.d. Holt í Önundarfirði - prestakall 0000 BA/5-1. ÞÍ.
„Ministerialbók Selárdals 1816–1872“, e.d. Selárdalur í Arnarfirði - prestakall 0000 BA/3-1. ÞÍ.
Snorri Sigfússon. „Torfahúsið á Flateyri“. Lesbók Morgunblaðsins. 27. september 1942.
„Um daginn og veginn“. Alþýðublaðið, 29. september 1932.
