Hálsmen
28.08.1892

Varðveitt hjá
Ljósmyndasafnið Ísafirði
Guðrún og María Teitsdætur. Guðrún var fædd 26. júní 1883, en María 20. nóvember 1885. Faðir þeirra var Teitur Jónsson (1841-1905), jafnan nefndur Teitur vert, en hann rak Hotel Isafjord til 1896. Kona Teits, og móðir Guðrúnar og Maríu, var Guðrún Gísladóttir (1845-1900).
Fjölskyldan fluttist frá Ísafirði til Viðeyjar árið 1895, en sneri aftur skömmu eftir lát móðurinnar. María virðist hafa fylgt föður sínum og eldri systur, Ragnhildi, en Ragnhildur hafði gifst Böðvari Bjarnasyni árið 1899. Með þeim kom ungabarn Ragnhildar og Böðvars, Bjarni Einar Böðvarsson. Böðvar Bjarnason var skömmu síðar kjörinn sóknarprestur á Hrafnseyri.
Teitur Jónsson fluttist til Bolungarvíkur, og fórst á bát þaðan í janúar 1905. Í fregn af skipaferðum á Ísafirði í ágústlok 1907 segir að María Teitsdóttir hafi farið til Kaupmannahafnar, ásamt Áslaugu Benediktsson. Áslaug var dóttir Önnu Teitsdóttur, en Anna var elst þeirra systkina. Óljóst er hvert Guðrún Teitsdóttir fór. Hún virðist ekki skráð í manntali 1901, en hugsanlegt er að hún hafi verið á heimili Önnu og skráð með röngu föðurnafni.
Aðrar upplýsingar
Ártal
28.08.1892
Safnnúmer
Safnnúmer A: BP-1892-432
Staður
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Björn Pálsson ljósmyndari
Flokkun
Heimildir
Skrá Björns Pálssonar, 1891-1916.
„Ísafjörður og grend“. Valurinn. 30. ágúst 1907.
Jón Þ. Þór. Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. II. bindi. Ísafjörður: Sögufélag Ísfirðinga, 1986.
„Ministerialbók Skutulsfjarðareyrarprestakalls byrjuð með árinu 1877“, e.d. Eyri í Skutulsfirði / Ísafjörður - prestakall 0000 BA/3-1. ÞÍ.
