Vettlingar

Varðveitt hjá
Safnahús Borgarfjarðar
10219 Vettlingar gerðir á Hallkelsstöðum í Hvítársíðu. Á Hallkelsstöðum var prjónað og selt og einkenni á þessum vettlingum þaðan er að stroffið er saumað saman en ekki prjónað á hringprjónum. Vettlingarnir eru sökkbrúnir með hvítu mynstri og voru gjöf frá Nikolínu Benjamínsdóttur prjónakonu (1889-1970) til Magnúsar Sigurðssonar á Gilsbakka, eiginmanns gefanda. Þeir voru notaðir spari svo þeir eru vel með farnir. Nikolína var dóttir Benjamíns Jónssonar og Nikhildar Erlingsdóttur og ólst upp hjá foreldrum sínum á Hallkelsstöðum í Hvítársíðu. Hún var vinnukona þar fram á fullorðinsár en síðar vinnukona á Gilsbakka um hálfrar aldar skeið. Hún var sæmd vinnuhjúaverðlaunum (Borgfirskar æviskrár VIII. bindi, bls. 21).
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Vettlingar
Safnnúmer
Safnnúmer A: BB-10219
Stærð
27.5 x 0 cm
Lengd: 27.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Vettlingur
