Vettlingar

10218 Vettlingar (fingraðir), dökkbrúnir, fingraðir, lengd 28 cm. Prjónaðir af Guðrúnu Sigurðardóttur á Laxfossi í Norðurárdal (1858-1954). Guðrún var fædd á Englandi í Lundarreykjadal, dóttir Sigurðar Vigfússonar og Hildar Jónsdóttur. Guðrún giftist Snorra Þorsteinssyni frá Húsfelli árið 1885 og bjuggu þau á Laxfossi frá árinu 1887 til dánardags. Meðal barna þeirra var Sigurður Snorrason (f. 1894) sem ólst upp á Húsafelli og bjó síðar á Gilsbakka. Vettlingarnir voru í eigu Magnúsar sonar Sigurðar sem einnig var bóndi þar og eiginmaður gefanda og voru þeir gjöf frá Guðrúnu ömmu hans. Að sögn gefanda notaði Magnús þá spari svo þeir eru vel farnir.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Vettlingar
Safnnúmer
Safnnúmer A: BB-10218
Stærð
28 x 0 cm Lengd: 28 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Fingravettlingur