Karlmaður
14.10.1892

Varðveitt hjá
Ljósmyndasafnið Ísafirði
Jón Pálsson frá Álftamýri í Arnarfirði, af skipinu "Guðrúnu".
f. 29. desember 1859, d. 8. maí 1923.
Í 6. tölublaði Ægis árið 1923 segir í minningargrein um Jón:
"Hinn 8. mai s.l. andaðist að heimili sínu á Ísafirði, Jón Pálsson skipstjóri.
Hann var fæddur að Dynjanda í Arnarfirði 28. des. 1859, sonur Páls Símonarsonar og Sígríðar Jónsdóttur, er þar bjuggju og voru merk hjón, en Páll var bróðir Sigurðar skipstj. Símonarssonar, eins af frömuðum þilskipaútvegsins við Faxaflóa.
Jón heit. Pálsson tók á unga aldri að fást við sjómensku pg varð brátt stýrimaður á hákalaskipi, nam síðan siglingafræði og gerðist skipstjóri um þrítugsaldur, og var það nær óslitið til dauðadags.
Á fyrri árum sínum stundaði hann einkum hákarlaveiðar og siðar þorskveiðar á þilskipum frá Ísafirði. Nokkur ár stýrði hann flutningaskipi á Breiðafirði og 2 síðustu árin var hann skipstjóri Djúpbátsins Braga. Hann var duglegur sjómaður, stjórnari góður, ókvíðinn og æðrulaus. Sótti hann sjó með festu og lægni og aflaði vel einkum á hákarl. Aldrei misti hann mann í sjóinn alla sina löngu skipstjóratið og hlektist aldrei á svo teljandi væri. Orð var á því gert hve rólyndur hann var, og kom honum það að góðu haldi í skipstjórastöðunni. Var hann því jafnan vel látinn af undirmönnum sínum, og virtur af öllum er kynni höfðu af honum, og sem póstbáts-skipstjóri gat hann sér bezta orðstýr.
Er með honum mikill sæmdarmaður úr hóp ísfirskra sjómanna til grafar genginn.
Kvæntur var hann Símoniu Kristjánsdóttur frá Stapadal og lifir hún mann sinn ásamt tveimur uppkomnum börnum þeirra: Sigríði konu Jóhanns Eyfirðings kaupm. á Ísafirði og Kristjáni er lokið hefir skipstjóraprófi í Reykjavik."
Aðrar upplýsingar
Ártal
14.10.1892
Safnnúmer
Safnnúmer A: BP-1892-291
Stærð
7 x 10.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Björn Pálsson ljósmyndari
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Karlmaður
Heimildir
Skrá Björns Pálssonar 1891-1916.
Ægir. 6. tbl. 1926, bls. 102-103.
