Kista, + hlutv.
1900

Varðveitt hjá
Menningarmiðstöð Þingeyinga
Kista með kúptu loki. Lengd. 108 cm, Breidd 50 cm, H. 52 cm. Kistan upphaflega úr búi Sigtryggs Péturssonar (Tryggva frosta) f. 1848 og konu hans Hólmfríðar Magnúsdóttur f. 1847. Bjuggu lengi í Höfða á Húsavík. Sigtryggur var fyrir íshúsinu á Húsavík og fékk viðurnefnið þess vegna. Áður bjuggu þau um tíma á Máná á Tjörnesi. Þau hjón tóku í fóstur Helga Benediktsson, síðar útgerðarmann í Vestmannaeyjum. f. 1899. Þegar hann fluttist frá Húsavík og til Eyja voru allar hans eigur í þessari kistu. Helgi dó 1971. Synir Helga, Arnþór og Páll afhentu kistuna BSÞ árið 1989. Var hún þá full af bréfum og skjölum sem snertu fjölbreytilegt lífshlaup Helga, sem var umsvifamikill útgerðarmaður, bóndi, hótelhaldari, blaðaútgefandi og bæjarpólitíkus í Vestmannaeyjum. Kistan er máluð í grænum lit með rauðum, hvítum og bláum blómum á loki og framhlið.
Aðrar upplýsingar
Helgi Benediktsson, Notandi
Ártal
1900
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 2544
Stærð
108 x 60 x 52 cm
Lengd: 108 Breidd: 60 Hæð: 52 cm
Staður
Staður: Höfði, Norðurþing
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn S-Þingeyinga
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kista, + hlutv.
