Hespunál

1820 - 1830
Hespunál. Nálin er úr beini, 8.7 cm löng og 0.9 - 0.5 cm á breidd. Mjókkar í oddinn, er þunn; auga í enda. Gefin Maríu af Júlíönu Guðmundsdóttur móðursystur Maríu. Áður átti nálina Helga Jónsdóttir frá Hólmavaði, ekkja Jóns Árnasonar bónda í Haga. Eigi yngri en frá 1820 - 1830 skv. M.J. Hespunálar vortu notaðar til þess að þræða bandhespur upp á band þegar þær höfðu verið undnar saman, á hliðstæðan hátt og fiskur var seilaður.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1820 - 1830
Safnnúmer
Safnnúmer A: 466
Stærð
8.7 x 0.9 cm Lengd: 8.7 Breidd: 0.9 cm
Staður
Staður: Krosshús, Þingeyjarsveit
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn S-Þingeyinga
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hespunál

Upprunastaður

66°9'44.8"N 17°50'36.8"W