Kragi

1910 - 1920
Hvítur bómullarkragi eða smekkur fyrir ungbarn, möndlulaga. Ofið bómullarefni með knippluðum brúnum. Ljósblár borði þræddur í gegnum blúnduna og bundin með slaufu neðst á smekki. Lykkja úr tvinna og hnappur til lokunar á hálsmáli. Nokkuð blettóttur (sýrublettir). Munir nr. 6640 til 6651 eru frá því um 1920 og eru barnaföt sem tilheyrðu börnum Davíðs Þorsteinssonar, þáverandi bónda á Arnbjargarlæk og konu hans Guðrúnu Erlendsdóttur, þeim Aðalsteini (f. 1918), Andreu (f. 1916) og Guðrúnu (f. 1914). Gefið af Guðrúnu Jónsdóttur, konu Davíðs Aðalsteinssonar sonarsonar Davíðs og Guðrúnar, einnig bænda á Arnbjargarlæk.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Kragi
Ártal
1910 - 1920
Safnnúmer
Safnnúmer A: 6644
Stærð
30 x 20.5 cm Lengd: 30 Breidd: 20.5 cm
Staður
Staður: Arnbjargarlækur, 311-Borgarnesi, Borgarbyggð, Þverárhlíð, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kragi

Upprunastaður

64°43'47.7"N 21°29'27.5"W