Kragi
1910 - 1920

Varðveitt hjá
Safnahús Borgarfjarðar
Kragi og manchettur af matrósafötum, dökkblátt með þremur, hvítum leggingum. Bómullarefni, klætt með hvítu lérefti. Nokkuð gulnað; sýrublettir. Áletrað með blýanti innan á kraga: 2/65.
Munir nr. 6640 til 6651 eru frá því um 1920 og eru barnaföt sem tilheyrðu börnum Davíðs Þorsteinssonar, þáverandi bónda á Arnbjargarlæk og konu hans Guðrúnu Erlendsdóttur, þeim Aðalsteini (f. 1918), Andreu (f. 1916) og Guðrúnu (f. 1914).
Gefið af Guðrúnu Jónsdóttur, konu Davíðs Aðalsteinssonar sonarsonar Davíðs og Guðrúnar, einnig bænda á Arnbjargarlæk.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1910 - 1920
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 6648
Stærð
29 x 0 x 30 cm
Lengd: 29 Hæð: 30 cm
Staður
Staður: Arnbjargarlækur, 311-Borgarnesi, Borgarbyggð, Þverárhlíð, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°43'47.7"N 21°29'27.5"W
