Mynd: Seðlabanki Íslands
Mynd: Seðlabanki Íslands

Seðill, peninga-

1948
50 krónu seðill úr þriðju seðlaröð Landsbanka Íslands.  Undirskriftir. Á seðlum í þessari röð eru báðar undirskriftir ávallt prentaðar. Á árunum 1927 og 1928 setti alþingi nýja löggjöf um Landsbanka Íslands. Þar voru mörkuð þau þáttaskil að Landsbankanum var fengið hlutverk seðlabanka og einkaréttur til seðlaútgáfu. Skyldi Landsbankinn gefa út seðla sem fullnægðu gjaldmiðilsþörf í innanlandsviðskiptum. Í lögunum er gert ráð fyrir því að seðlar bankans séu gulltryggðir og innleysanlegir gegn gulli, en tekið fram að ákvæði um innlausnarskylduna komi ekki til framkvæmda fyrr en alþingi ákveði það sérstaklega. Það var ekki gert. Seðlar gefnir út samkvæmt lögum nr. 10 / 15. apríl 1928 um Landsbanka Íslands.

Aðrar upplýsingar

Teiknari: Jón Þorleifsson
Mynts.prentsm.:
Bradbury Wilkinson & Co
Útgefandi:
Landsbanki Íslands
Ártal
1948
Safnnúmer
Safnnúmer A: ISB-311
Stærð
85 x 135 mm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Safn Íslandsbanka
Áletrun / Áritun
Myntmerki Myntmerki
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Seðill, peninga-
Myndefni:
Bátur
Myndefni:
Tölustafur
Myndefni:
Höfn
Myndefni:
Ártal
Myndefni:
Bókstafur
Myndefni:
Andlitsmynd
Útgáfa / Sería
2705020
Gjaldmiðill
Nafnverð: 50 Króna/-ur
Heimildir
Opinber gjaldmiðill á Íslandi Útgáfa og auðkenni íslenskra seðla og myntar, Reykjavík 2002 Lög nr. 67 / 5. júní 1947 um eignakönnun. Auglýsing Viðskiptamálaráðuneytis 19. des. 1947 um að út séu gefnir nýir bankaseðlar samkvæmt lögum um Landsbanka Íslands. Lögbbl. 20. des. s.á. Gildislok 3. seðlaraðar Reglugerð nr. 286 / 24. nóv. 1969 um innköllun nokkurra eldri peningaseðla. Auglýsing Seðlabanka Íslands 15. jan. 1970 um innköllun nokkurra eldri peningaseðla. Lögbbl. s.d. Innlausnarfrestur: til og með 15. jan. 1971 og gagnvart Seðlabanka Íslands eigi skemur en til og með 15. jan. 1972.