Mynd: Seðlabanki Íslands
Mynd: Seðlabanki Íslands

Seðill, peninga-

1934
10 krónu seðill úr annari seðlaröð Landsbanka Íslands.  Þessi seðill tilheyrir þriðju prentun með bókstafnum B í byrjun raðnúmers.  Undirskriftir. Á seðlum í þessari röð eru báðar undirskriftir ávallt prentaðar. Á árunum 1927 og 1928 setti alþingi nýja löggjöf um Landsbanka Íslands. Þar voru mörkuð þau þáttaskil að Landsbankanum var fengið hlutverk seðlabanka og einkaréttur til seðlaútgáfu. Skyldi Landsbankinn gefa út seðla sem fullnægðu gjaldmiðilsþörf í innanlandsviðskiptum. Í lögunum er gert ráð fyrir því að seðlar bankans séu gulltryggðir og innleysanlegir gegn gulli, en tekið fram að ákvæði um innlausnarskylduna komi ekki til framkvæmda fyrr en alþingi ákveði það sérstaklega. Það var ekki gert. Seðlar gefnir út samkvæmt lögum nr. 10 / 15. apríl 1928 um Landsbanka Íslands, 100 kr. seðill þó samkvæmt lögum nr. 48 / 31. maí 1927 um Landsbanka Íslands.

Aðrar upplýsingar

Teiknari: Jón Þorleifsson
Mynts.prentsm.:
Bradbury Wilkinson & Co
Útgefandi:
Landsbanki Íslands
Ártal
1934
Safnnúmer
Safnnúmer A: ISB-222
Stærð
70 x 120 mm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Safn Íslandsbanka
Áletrun / Áritun
Myntmerki Myntmerki
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Seðill, peninga-
Myndefni:
Foss
Myndefni:
Tölustafur
Myndefni:
Bókstafur
Myndefni:
Andlitsmynd
Myndefni:
Ártal
Myndefni:
Bygging
Útgáfa / Sería
B 0047351
Gjaldmiðill
Nafnverð: 10 Króna/-ur
Heimildir
Opinber gjaldmiðill á Íslandi Útgáfa og auðkenni íslenskra seðla og myntar, Reykjavík 2002 Auglýsing Fjármálaráðuneytis 6. júlí 1934 um að út séu gefnir nýir 10 króna bankaseðlar samkvæmt lögum um Landsbanka Íslands. Lögbbl. 12. júlí s.á.