Kona

Úr ljósmyndasafni Júlíönu Jóhönnu Jónsdóttur (1876-1957). Hún var dóttir Jóns Jónssonar og Sigríðar Þorbjargar Jónsdóttur, frá Stóra-Kálfalæk. Júlíana giftist Bjarna Helgasyni (1870-1942) og bjuggu þau í Reykjavík, að Kárastíg 2. Júlíana og Bjarni eignuðust tvo syni: Helga (1905-2000) og Ólaf (1915-1960). Rósbjörg Jónsdóttir (1870-1970) var systir Júlíönu (þær áttu sama föður, en móðir Rósbjargar var Ingibjörg Andrésdóttir (1845-1913)), hún fór til Vesturheims ásamt móður sinni árið 1883. Því má greina myndir frá Kanada og Bandaríkjunum í safninu sem Rósbjörg og önnur skyldmenni sendu Júlíönu. Helgi Bjarnason (f. 1953), langömmubarn Júlíönu, afhenti Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar þessar ljósmyndir til varðveislu.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 2014-46-17
Stærð
10.5 x 6.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ljósmyndasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Kona
Myndefni:
Peysuföt