Kniplibretti
1920 - 1985

Varðveitt hjá
Byggðasafn Dalvíkurbyggðar Hvoll
Pappaspjald hefur verið stoppað
á annari hliðinni og utan um spjaldið saumað úr grænu bómullarefni. Á græna
efninu liggur annar efnisbútur úr ljósu bómullarefni. Þar ofan á er þunnt
pappaspjald, 48 x 32 cm að stærð, og á því er kniplmunstur. Byrjað hefur
verið á kniplstykkinu og er það fest niður með títiprjónum. Kniplstokkarnir
eru áfastir við stykkið. Þeir eru allir í flækju. Kniplbrettið og allt
sem á því er , er illa farið, blettótt og rifið. Eftirfarandi lýsing á
lífshlaupi Helgu er fengið úr skrifum Sigrúnar Margnúsdóttur um frænku
sína. ,,Helga Vilhjálmsdóttir var fædd 11. febrúar 1902 að Ölduhrygg í
Svarfaðardal. Hún var dóttir hjónanna Kristínar Jónsdóttur og Vilhjálms
Einarssonar. Árið 1904 fluttu þau hjónin að Bakka í Svarfaðardal
og bjuggu þar til æviloka og eru ætíð kennd við þann bæ. Helga var fimmta
í röðinni af átta systkinum sem upp komust. Hún braust ung til mennta og
sýndi dugnað og áræðni sem á þeirri tíð var óvenjulegt hjá ungum stúlkum.
Á þeim tíma var fátítt að stúlkur færu utan til náms. Árið 1925 fór hún
til Danmerkur að afla sér frekari menntunar í lýðháskóla og síðan í handavinnunám.
Þá fór hún árið 1927 til Noregs og nam við lýðháskólan á Voss, sem þá naut
mikillar frægðar, og lærði þar handavinnu og kjólasaum. Kennsla varð hennar
lífsstarf. Við heimkomuna var hún fyrst kennari á Ólafsfirði og síðar í
dalnum. Hún hélt námsskeið vítt og breitt um héraðið, m.a. í kjólasaum
og saumuðu margar konurnar fyrsta kjólinn undir leiðsögn Helgu. Helga hafði
sérstaka unun af að sauma barnaföt og nutu margir góðs af. Hún sendi marga
kassana til Noregs eftir stríð af barnafatnaði sem hún saumaði. Helga
bjó á Bakka þar til hún varð handavinnukennari við Kvennaskólann á Blöndósi
haustið 1942 og gengdi hún því starfi til 1947 er hún gerðist kennari við
Húsmæðraskólann á Varmalandi í Borgarfirði. Þar kenndi hún í tæp 20 ár
eða til ársins 1966,, . Helga var ógift og barnlaus. Hún var frænka gefanda.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1920 - 1985
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2010-12
Stærð
58.5 x 47.5 cm
Lengd: 58.5 Breidd: 47.5 cm
Staður
Staður: Bakki, 621-Dalvík, Dalvíkurbyggð, Svarfaðardalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kniplibretti
Upprunastaður
65°53'37.0"N 18°35'40.1"W
