Burstabær

1934
Hópmynd fyrir framan torfbæ, aftan á stendur „Trúlofun Sigga '34“. Frá vinstri: Árni Björnsson, Guðrún Laufey (Blaka), Hanna Helgad, Björn Franklín, Selma, Gunnar Thoroddsen, Ása, Siggi, Ragna Björnsson og óþekkt kona. Ljósmyndasafn úr dánarbúi Guðrúnar Laufeyjar Jónsdóttur (1910 - 2004) sem var ævinlega nefnd Blaka. Ljósmyndir þessar eru frá Blöku og systkinum hennar. Systkini Blöku voru: Björn Franklín (1908 - 1976), hagfræðingur; Halldór Haukur (1912 - 1992), arkitekt og Sigþrúður Selma (1917 - 1988), listfræðingur. Foreldrar þeirra voru Jón Björnsson (1878 - 1949) frá Bæ, sem var lengi kaupmaður í Borgarnesi og Helga María Björnsdóttir (1880 - 1972) frá Svarfhóli. Jón og Helga fluttu í Borgarnes árið 1906, nánar tiltekið í Kaupang (Brákarbraut 11) sem er elsta húsið í Borgarnesi (byggt 1878). Þar stofnuðu þau fjölskyldu og bjuggu þar í fjörutíu ár eða þangað til þau fluttu til Reykjavíkur 1946.

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1934
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2007-35-471
Stærð
6 x 11 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ljósmyndasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Burstabær
Myndefni:
Hópur, fólks
Myndefni:
Trúlofun
Myndefni:
Vinahópur