Hnykill

Varðveitt hjá
Byggðasafn Dalvíkurbyggðar Hvoll
Einn íleppur er skráður á þetta númer og 8 ullarbands hnyklar. Íleppurinn er tvílitur; ljós og brúnn, skipur í fjóra litafleti - 2 ljósir og 2 brúnir. Íleppurinn er 21 cm á lengd og 8 cm á breidd. Hann er prjónaður með garðaprjóni og sérstakri aðferð sem aðallega var notuð við íleppagerð hér áður fyrr. Í orðabók segir um íleppa að hann er prjónaður eða sumaður laus sóli sem er lagður inn í íslenskan skó.  Í hnyklunum er þrinnað band sem spunnið er af móður gefanda, Kristínu Jónsdóttur. Alls eru þetta 8 hnyklar í brúnleitum og gráum litatónum.  Kristín Jónsdóttir var húsmóðir á Bakka í Svarfaðardal en hún fæddist á Jarðbrú í Svarfaðardal árið 1868. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson og Sólveig Sveinsdóttir. Kristín giftist Vilhjálmi Einarssyni og bjuggu þau saman á Bakka ásamt börnum sínum. Þau eignuðust saman 12 börn en aðeins 8 þeirra komust á legg. Í minningargrein um Kristínu er henni svo lýst: „Því hún var eigi aðeins gjörvileg greindarkona, heldur og frábær gæðakona, geðprúð og glaðvær, sterkbyggð og traust kona, sem engin hretviðri eða sviptibyljir högguðu. Hún var hin sívökula og sístarfandi húsfreyja, mikilvirk og velvirk og góð móðir.“

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 1798
Staður
Staður: Bakki, 621-Dalvík, Dalvíkurbyggð, Svarfaðardalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hnykill
Efnisorð:
Íleppur
Heimildir
Minningagrein um Kristínu Jónsdóttur - Tíminn, 01.05.1964 - tölublað 108, bls 8.

Upprunastaður

65°53'37.0"N 18°35'40.1"W