Miðstöðvareldavél

Varðveitt hjá
Byggðasafn Dalvíkurbyggðar Hvoll
Miðstöðvareldavél sem er silfurbronsuð. Svona vélar voru hitaðar upp með kolum,viði og fleiru. Vatnstúba gengur upp úr vélinni en rör gengu úr henni og í ofnanna. Einnig gengur upp úr vélinni reykrör 41,5 cm í ummál og 3,5 cm á hæð. Þar ofan í gengur rör sem er 37,3 cm að lengd og þar ofan í gengur hnébeygja sem síðan gekk inn í múrpípuna. Vélin stendur á 4 fótum. Ofan á vélinni eru 2 op. Annað þeirra er 27 cm í þvermál og er lokað með eldavélahring sem er 26,3 cm í þvermál. Hitt opið er 34,5 cm í þvermál. Því er lokað með tvískiptum eldavélahring þar sem annar hringurinn er 6,3 cm á breidd og hinn sem fellur ofan í þann stærri er 21,1 cm í þvermál og á honum er hald svo auðveldara væri að lyfta honum upp. Framan úr vélinni á sitt hvorum enda ganga 2 rör með lykkju á endanum og þar í gegn gengur rör sem er 71,8 cm að lengd. Á þetta rör voru hengdar kolasköfur, skörungar og fleira. Á vélinni eru 3 hurðir. Stæsta hurðin er ofnhurðin sem er 25,5 x 20 cm að stærð og á henni er hurðarhúnn. Í ofnunum er plata sem er 32,5 x 23,5 cm að stærð og hægt var að hafa hana í 2 hæðarstillingum. Einnig er í ofninum eldunarskúffa sem er 32,7 x 23,7 x 4,5 cm. og á henni 2 eyru. Hún er úr blikki með svörtu smelti. Innan á hurðina er stimplað "909.N.". Hurð sem er 18 x 14,7 cm að stærð er fyrir opinu þar sem eldiviðurinn var settur í og í botni þess er rist. Hurðarhúnninn er dottinn af þessari hurð. Undir þessari hurð eru 2 op og þar í er stétt sem er 20,5 x 11 cm. og er rúnnuð að framanverðu. Þriðja hurðin er 18 x 12,3 cm að stærð og er fyrir opinu þar sem askan féll niður og var tekin. Innan á þessa hurð er stimplað "908.9" og "908-9. N.". Hurðarhúnninn er dottinn af þessari hurð. Á 2 minni hurðunum er trekklúga. Á framhlið vélarinnar er stimplað "SCANDIA No 909-N". Á hliðarnar er stimplað hringlaga vörumerki og þar stendur "LANGE SVENDBORG".

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 487
Stærð
72.5 x 45.6 x 69.5 cm Lengd: 72.5 Breidd: 45.6 Hæð: 69.5 cm
Staður
Staður: Hjaltabakki, 541-Blönduósi, Húnabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

65°38'6.8"N 20°18'1.8"W