Lóðakassi

Varðveitt hjá
Byggðasafn Dalvíkurbyggðar Hvoll
Kassinn er útbúinn úr viði og eru á honum litlar hjarir úr málmi sem eru negldar í viðinn. Að framanverðu er negld festing og henni krækt í lítinn málmhring á efri hluta kassans. Viðarkassanum mætti í raun lýsa sem tveimur viðarbútum (efri 2 cm og neðri 2,4 cm) sem opnast eins og kista. Þegar kassinn er opnaður má sjá 10 útskorna hringi í lokinu sem speglast í 10 útskorna hringi í botnfleti. Hringirnir þjóna þeim tilgangi að geyma hringlótt lóð. Þvermál hvers hrings jafngildir þvermáli þess lóðs sem passar í hringinn. Hringirnir eru misstórir og lóðin misþung. Aðeins 5 lóð hafa varðveist í þessum lóðakassa og eru þau 10g, 20g, 50g, 100g og 200g. Það vantar því 5 lóð með minni þyngdum. Á lóðunum miðjum er útstæður nabbi notaður til að ná lyfta lóðunum úr kassanum.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Ingunn Kristjánsdóttir
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1628
Stærð
17 x 7.5 x 4.4 cm
Lengd: 17 Breidd: 7.5 Hæð: 4.4 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lóðakassi



