Kona

Varðveitt hjá
Safnahús Borgarfjarðar
Hildur Guðmundsdóttir (1882-1953) frá Deild á Akranesi (SBBP 2022). Maður Hildar var Guðmundur Loftsson (1871-1959). Guðmundur var bókhaldari við Brydesverslun í Borgarnesi 1898-1905). Hann var deildarstjóri Liverpoolverslunar um tíma. Þau bjuggu saman í Reykjavík allt sitt hjónaband fyrir utan þau 5 ár sem þau bjuggu á Eskifirði þegar Guðmundur var bankastjóri við útibú Landsbankans á Eskifirði.
Afhendandi ljósmynda: Sigrún Fjeldsted (f. 1950).
Ljósmyndir frá foreldrum Sigrúnar; Sigurjóns Fjeldsted (1898 - 1977) og Sigrúnar Guðnadóttur Fjeldsted (1921 - 2015). Flestar myndirnar voru upphaflega í eigu Vigdísar Pétursdóttur (1870 - 1937), frá Grund í Skorradal, og Vernharðs Fjeldsted (1865 - 1908), frá Ferjukoti. Vigdís og Vernharður voru foreldrar Sigurjóns.
Aðrar upplýsingar
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2016-26-5
Stærð
10.5 x 6.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ljósmyndasafn Borgarfjarðar
Flokkun
