Veggsími

Þetta er sveitasími. Sveifinni var snúið til að hringja og átti hver bær sína hringingu. Talað var um "stutta og langa" Dæmi: Tvær stutta og tvær langar. Hringingin heyrðist þó á öllum bæjum í sveitinni og hægt var að hlera samtölin.  Margar sögur eru til um slíkar hleranir. Fólk var forvitið og vildi vita hvað um væri að vera. En ef einhver lagði á í miðju samtali heyrðist smellur svo augljóst var að fleiri höfðu verið á línunni. Á þessum síma er þó rauður hnappur sem notaður var til að hringingin heyrðist ekki á öðrum bæjum.

Aðrar upplýsingar

LM Ericsson, Hlutinn gerði
Gefandi:
Síminn
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2008-2034
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Veggsími