Bókastoðir

1920 - 1950
Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Bókastoðir úr gifsi. Bókastoðirnar eru í líki nótnabókar og með fiðlu og boga uppreist við nótnabókina. Stoðirnar eru gylltar og svartar á litin. Hæð 14,5 sm, breidd 8 sm. Stoðirnar voru í eigu Ingunnar Bjarnadóttur tónskálds í Hraunteig í Hveragerði. Ingunn gaf Aðalbjörgu M. Jóhannsdóttur í Hveragerði stoðirnar árið 1952. Aðalbjörg gaf síðan Minjasafni Kristjáns Runólfssonar gripinn en þar fékk hann númerið MKR 2402. Byggðasafn Skagfirðinga gaf safninu muninn.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1920 - 1950
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2014-12-39
Stærð
14.5 x 8 x 16 cm Lengd: 14.5 Breidd: 8 Hæð: 16 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Hveragerðisbær, Hveragerðisbær, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bókastoðir