Prímus
1920 - 1940

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Ferðaprímus í kassa úr málmi með handfangi. Kassinn utan um prímusinn er 17 sm langur, 13 sm breiður og 9 sm hár. Kassinn er nú orðinn ryðgaður en prímusinn sjálfur er í betra ástandi.
Kristján Guðnason frá Gígjarhólskoti átti þennan ferðaprímus og notaði hann í fjallferðum, vorrekstrum og þegar hann lá við tófugreni á vorin. Bræðurnir frá Helludal minnast þess að hafa verið í grenjaleitum með Kristjáni á árunum 1930-1940 og þá hafi hann haft þennan prímus þannig að gripurinn er kominn vel til ára sinna.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1920 - 1940
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2014-11-1
Stærð
17 x 13 x 9 cm
Lengd: 17 Breidd: 13 Hæð: 9 cm
Staður
Staður: Gýgjarhóll 1, 801-Selfossi, Bláskógabyggð, Biskupstungur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Prímus
Upprunastaður
64°17'9.3"N 20°13'57.6"W
