Pönnukökupanna

1949
Varðveitt hjá
Byggðasafn Dalamanna
Þessi pönnukökupanna var keypt þegar Þuríður Ólafsdóttir hóf sinn búskap 1949. Hún var upphaflega með stuttu skafti, sem brann eins og flest sköft og höldur á pottum á olíuvélunum. Kristvin Jónasson á Leikskálum, móðurbróðir Þuríðar, var hagur maður bætti og lengdi skaftið með skeifuteini og upphaflega skaftið var sett á endann. Gott var að nota pönnuna eftir það á heitum olíuvélum. Pönnuna notaði Þuríður þangað til hún gaf Byggðasafninu hana 1998.

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1949
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1998-2-2
Staður
Staður: Leikskálar, 371-Búðardal, Dalabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Pönnukökupanna

Upprunastaður

65°3'37.5"N 21°29'23.9"W