Mynd, sem veggskraut
1900 - 1960, Thorvald Antonius Molander

Varðveitt hjá
Safnahús Borgarfjarðar
Olíumálverk af Hafnarfjalli, Búðarkletti, Kaupangi og fl. húsum auk báta í fjöru. Myndin er í gylltum 5.5 cm breiðum munstruðum ramma og stærð hans 85 x 60.5 cm. Myndina málaði Thorvald Molander listmálari einhverntíma milli áranna 1910 og 1930. Thorvald Molander (1900-1972)? var fæddur í Svíþjóð, faðir sænskur, móðirin finnsk. Fluttust til Norður-Noregs og gerðust noskir ríkisborgarar. Molander kom til Íslands 1930 með síldarskipi, en strauk af skipinu á Siglufirði, ílentist þar og kvæntist íslenskri konu (Önnu Flóventsdóttur Molander, Tjarnarstíg 8, lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 28. janúar 1989.) Þau áttu tvö börn, Grétu sem giftist Halldóri G. Benediktssyni, skipstjóra frá Hnífsdal og Aage Molander. Var að sögn á margan hátt áhugaverð persóna, mikið snyrtimenni og listrænn, spilaði á fiðlu. Hann ferðaðist á sumrin víðs vegar um landið, kynntist fólki og málaði vatnslitamyndir eða skissur, sem hann lauk síðan við á veturna. Ekkert yfirlit er til um þau verk. Árið 1952 sagði hann skilið við land og fjölskyldu og fluttist til Noregs. Málverkið er frá heimili Jóns Björnssonar frá Bæ og konu hans Helgu Maríu Björnsdóttur frá Svarfhóli. Myndin hékk í stigaholi í húsi þeirra á Hagamel. Gef. í okt. 2007 eru Garðar Jón og Halldór Halldórssynir.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1900 - 1960
Safnnúmer
Safnnúmer A: 8870
Staður
Staður: Hagamelur 15, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Mynd, sem veggskraut
Upprunastaður
64°8'35.9"N 21°57'28.0"W
