Bryndís Elsa Sigurðardóttir

12.11.1922 - 16.09.2022
Staður
Staður: Hraunvangur 7, 220-Hafnarfjörður, Hafnarfjarðarkaupstaður, Hafnarfjörður, Ísland Núverandi sveitarfélag: Hafnarfjarðarkaupstaður, Hafnarfjarðarkaupstaður Sveitarfélag 1950: Hafnarfjörður
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Bryndís Elsa Sigurðardóttir. Fædd 12. nóvember 1922. Dáin 16. september 2022 á Hrafnistu í Hafnarfirði. Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1945-1946. Húsmóðir í Hafnarfirði. For. Sigurður Sigurðsson kaupmaður og Elísabet Böðvarsdóttir (1896-1993) kaupkona í Hafnarfirði. Fósturforeldrar Elsu voru móðurafi hennar Böðvar Böðvarsson (1863-1953) bakari og stjúpamma hennar Guðný Jónasdóttir í Hafnarfirði. Maður Elsu (1946, skildu) var Einar Sigurjónsson (1924-2006) hárskeri úr Hafnarfirði. Kjörbörn þeirra eru Steinþór (1952) og Guðný Elísabet (1956). Heimildir: Einar Kristjánsson og Steinunn Þorgilsdóttir. 1967. Staðarfellsskóli 40 ára. Bls. 27-28.
Tengd aðföng