Hrefna Bergmann Einarsdóttir

18.4.1924 - 12.05.2006
Staður
Staður: Bústaðavegur 83, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Fossvogur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Hrefna Bergmann Einarsdóttir fæddist í Hafnarfirði 18. apríl 1924. Hún lézt á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 12. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Einar Sveinsson múrarameistari, f. á Eyrarbakka 7. nóvember 1891, d. 26. maí 1974, og Hulda Bergmann Sigfúsdóttir húsmóðir, f. í Hafnarfirði 2. júní 1903, d. 14. júní 1993. Systkini Hrefnu eru Sigfús Bergmann Einarsson læknir, f. 6. marz 1927, í Svíþjóð; Auður Einarsdóttir, f. 10. nóv. 1929, og Þórunn Einarsdóttir, f. 8. október1937, fyrrverandi kaupmenn – m.a. ráku þær systur saman verzlunina Snotru um árabil. Hrefna giftist 13. júlí 1946 eftirlifandi eiginmanni sínum, Magnúsi Ásmundssyni, fyrrverandi deildarstjóra hjá Tollstjóraembættinu í Reykjavík, f. 3. nóvember 1921. Börn þeirra eru: 1) Einar Magnússon, viðskiptafræðingur og handknattleiksmaður í Reykjavík og í Þýzkalandi, f. 7. maí 1948, d. 6. janúar 2000, kvæntur Stefaníu M. Júlíusdóttur kennara, f. 26. marz 1950. Sonur þeirra er Davíð, f. 31. desember 1986. 2) Ásmundur Magnússon læknir í Reykjavík, f. 12. marz 1951, var kvæntur G. Jódísi Konráðsdóttur hjúkrunarfræðingi, f. 13. maí 1956. Þau skildu. Börn þeirra eru Magnús, f. 29. júní 1981, og Hrefna, f. 19. apríl 1984. Fóstursonur Ásmundar, sonur Jódísar, er Sigurður Jónsson, f. 20. ágúst 1972; sambýliskona Theódóra Elísabet Smáradóttir, f. 12.október 1982. Synir Sigurðar og Kolbrúnar Lilju Bjarnadóttur, f. 18. júlí 1973, eru Gabríel Aron, f. 18. desember 1998 og Mikael Máni, f. 23. janúar 2002. 3) Auður Magnúsdóttir hárgreiðslumeistari í Reykjavík, f. 21. febrúar 1958, gift Halldóri Kristiansen, f. 7. ágúst 1956. Sonur þeirra er Einar, f. 14. nóvember 1986. Hrefna fluttist í bernsku með foreldrum sínum til Reykjavíkur og ólst upp í Vesturbænum – bjuggu lengst af á Víðimel 58. Hún gekk í Miðbæjarbarnaskólann og í Gagnfræðaskóla Reykvíkinga, í Iðnaðarmannafélagshúsinu Lækjargötu 14a, („Ágústarskólann“). Hún var einnig um tíma í Handíða og myndlistarskólanum og í enskunámi í einkakennslu sem henni nýttist vel alla ævi. Auk þess útskrifaðist hún úr Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Hrefna starfaði við verzlunar- og skrifstofustörf fyrir giftingu, en síðan við húsmóðurstörf. Útför Hrefnu verður gerð frá Grensáskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Heimildir: https://timarit.is/files/42339244#search="HREFNA%20BERGMANN%20EINARSDÓTTIR"
Tengd aðföng