Jensína Jóna Jónatansdóttir
7.12.1907 - 06.09.1992
Staða
Húsmæðrakennari
Staður
Staður: Staðarfell, 371-Búðardal, Dalabyggð, Fellsströnd, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland
Sveitarfélag 1950: Fellsstrandarhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Jensína Jóna Jónatansdóttir. Fædd 7. desember 1907, dáin 6. september 1992. Frá Hóli, Önundarfirði, Vestur-Ísafjarðarsýslu. Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1929-1930. Vorið 1933 dvaldist hún í Noregi við nám í vefnaði. Vefnaðarkennari á Staðarfelli 1933-1936. Starfaði í Reykjavík 1936-44,lengst af á prjónastofunni Vestu. Kaupakona í Galtalæk 1944. Húsfreyja á Galtalæk í Biskupstungum 1944-1991. For. Jónatan Magnússon (1866-1942) bóndi og Guðrún Jónsdóttir (1867-1963) á Hóli í Önundarfirði. Systkini Jensínu voru Magnús (1897-1985), Guðrún (1898-1937), Jóna (1900-1900), Jón (1902-1991), Sigríður (1904-) og Bóas (1905-1977). Fóstursystur Jensínu voru Gróa Salómonsdóttir, Þórunn Ólafsdóttir og Friðrika Þorbjörnsdóttir. Maður Jensínu var Hermann Egilsson (1906-1992) bóndi. Börn þeirra eru Jónatan (1946) og Steinunn (1947).
Heimildir:
Einar Kristjánsson og Steinunn Þorkelsdóttir. 1967. Staðarfellsskóli 40 ára. Bls. 22-23.
Minningargrein Mbl. 19.9.1992, bls. 29.
Plötusafn Jóns Guðmundssonar og Guðmundar Jónssonar Ljárskógum, nr. 26..
Tengd aðföng











