Ingiberg Jónas Hannesson
9.3.1935 - 07.04.2019
Staða
Alþingismaður, Prestur
Staður
Staður: Hvoll, 371-Búðardal, Dalabyggð, Saurbær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland
Sveitarfélag 1950: Saurbæjarhreppur Dal.
Staður: Digranesvegur 22, 200-Kópavogur, Kópavogsbær, Kópavogsháls, Ísland
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Foreldrar: Hannes
Guðjónsson sjómaður f. 19.04.1898, d.01.02.1977. Þorsteina Guðjónsdóttir
f. 30.10.1907, d. 10.04.1991.
Maki: Helga
Steinarsdóttir f. 20.05.1934.
Börn: Birkir,
Þorsteinn Hannes, Bragi Jóhann, Sólrún Helga.
Stúdentspróf Laugarvatni
1955. Guðfræðipróf HÍ 1960.
Prestur í Staðarhólsþingum
frá 1960 til 1970 þegar þau voru sameinuð breyttu Hvammsprestakalli sem
hann hefur gegnt síðan, en situr sem áður á Hvoli í Saurbæ. Prófastur í
Dalaprófastsdæmi 1969—1971 og prófastur í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi
frá 1976. Fréttaritari Morgunblaðsins 1970—1994.
Formaður Bræðralags,
kristilegs félags stúdenta 1957—1958. Formaður skólanefndar Saurbæjarhrepps
1960—1962. Formaður barnaverndarnefndar Saurbæjarhrepps 1962—1990. Formaður
áfengisvarnanefndar Saurbæjarhrepps frá 1964 og formaður Félags áfengisvarnanefnda
í Dala- og Austur-Barðastrandarsýslu frá 1970. Formaður Veiðifélagsins
Laxins 1964—1994 og stjórnarformaður Dalalax 1983—1994. Endurskoðandi
Kaupfélags Saurbæinga 1964—1991. Formaður skólanefndar Laugaskóla frá
1965 og formaður framkvæmdanefndar Laugaskóla 1966—1991. Í fræðsluráði
Vesturlands 1974—1978. Í þjóðhátíðarnefnd Dalasýslu 1974 og í stjórn Hallgrímsdeildar
Prestafélags Íslands 1977—1989. Sat Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
1978 og 1984.
Alþm. Vesturl. 1977—1978
(Sjálfstfl.).
Landsk. vþm. (Vesturl.)
apríl—maí 1975, vþm. Vesturl. febr.—mars 1976 og mars—maí 1977.
Heimildir: Alþingismannatal
Tengd aðföng










