Guðný Ástrún Valdimarsdóttir

11.7.1920 - 11.09.2011
Staða
Handavinnukennari
Staður
Staður: Lindarberg 54a, 220-Hafnarfjörður, Hafnarfjarðarkaupstaður, Stekkjarhraun, Ísland Núverandi sveitarfélag: Hafnarfjarðarkaupstaður, Hafnarfjarðarkaupstaður Sveitarfélag 1950: Hafnarfjörður Sveitarfélag 1950: Stafholtstungnahreppur Núverandi sveitarfélag: Borgarbyggð, Borgarbyggð Staður: Guðnabakki, 311-Borgarnesi, Borgarbyggð, Stafholtstungur, Ísland Staður: Kjalvararstaðir, 320-Reykholt í Borgarfirði, Borgarbyggð, Reykholtsdalur, Ísland Sveitarfélag 1950: Reykholtsdalshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Guðný Ástrún Valdimarsdóttir. Fædd 11. júlí 1920 á Kjalvararstöðum í Reykholtsdal. Dáin 11. september 2011. Héraðsskólinn í Reykholti 1941-1942, Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1942-1943. Kennarapróf frá Kennaraskólanum 1947 og Handíðaskólanum 1949. Sótti fjölda námskeið í Danmörk, Svíþjóð, Noregi og Skotlandi. Handavinnukennari við Héraðsskólann og Húsmæðraskólann á Laugarvatni 1950-1952, Námsflokka Reykjavíkur 1952-1954, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1952-1964, Ármúlaskóla 1966-1967 og 1968-1977 og í Hagaskóla 1964-1965 og 1977-1987. Í stjórn Handavinnukennara Íslands 1957-1962. For. Valdimar Davíðsson (1899-1974) bóndi og Helga Ingibjörg Halldórsdóttir (1895-1985) húsfreyja á Guðnabakka í Stafholtstungum. Systkini Ástrúnar voru Guðrún (1924), Þórður (1925), Valdís (1927-1995), Halldór (1928-1995), Þorsteinn (1929-2001) og Guðbjörg (1934-2004). Maður Ástrúnar (1961) var Aðalsteinn Sigurðsson (1916-2007) fiskifræðingur. Sonur þeirra er Magnús Þór (1965). Dóttir Aðalsteins af fyrra hjónabandi og stjúpdóttir Ástrúnar er Guðný (1949). Heimildir: Minning – Guðný Ástrún Valdimarsdóttir. Morgunblaðið 20.9.2011. Bls. 23. Einar Kristjánsson og Steinunn Þorgilsdóttir. 1967. Staðarfellsskóli 40 ára, bls. 26.
Tengd aðföng