Sigrún Helgadóttir
20.12.1902 - 10.12.1992
Staður
Staður: Foss 1, 880-Kirkjubæjarklaustri, Skaftárhreppur, Síða, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Skaftárhreppur, Skaftárhreppur
Sveitarfélag 1950: Hörgslandshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Foreldrar hennar Helgi Magnússon bóndi og kona hans Gyðríður Sigurðardóttir. Fædd í Múlakoti á Síðu. Fór til Reykjavíkur um 1922. Átti síðan heima á Seyðisfirði, Gunnarsholti og Reykjavík frá 1953. Eiginmaður: Hjálmar Vilhjálmsson sýslumaður og bæjarstjóri.
Sigrún var eina barn Helga og Gyðríðar sem komst á legg en þau misstu ungan son, Indriða. Aðeins sex ára gömul missti Sigrún föður sinn, eftir það bjó hún ásamt móður sinni hjá móðursystur sinni Elínu Sigurðardóttur og hennar manni Lárusi Helgasyni á Kirkjubæjarklaustri. Þau voru henni bestu foreldrar og bjó hún hjá þeim fram á fullorðinsár.
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Mms. 31553-34346. Vestur Skaftfellingar III, 384.
Tengd aðföng


