Hjálmar R. Bárðarson

8.6.1918 - 07.04.2009
Staða
Verkfræðingur, Siglingamálastjóri, Ljósmyndari
Staður
Staður: Hrauntunga, Álftanesvegur, 210-Garðabær, Garðabær, Álftanes, Ísland Núverandi sveitarfélag: Garðabær, Garðabær Sveitarfélag 1950: Garðahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Foreldrar:  Foreldrar:  Filippía Hjálmarsdóttir f. 27.06.1893, d. 20.11.1918 og Bárður Guðmundur Tómasson skipaverkfræðingur f. 13.03.1885, d. 10.07.1961. Maki:  Else Sörensen Bárðarson f. 06.05.1920. Störf:  Skipaverkfræðingur, skipaskoðunarstjóri, siglingamálastjóri, forseti Alþjóðasiglingamálastofnunar SÞ. Viðbót 28, janúar 2010: Fæddur á Ísafirði 8.júní 1918 og alinn upp þar, m.a. við smíði tréskipa. Hvar dvalist: Árin 1918-1940 á Ísafirði nema í menntaskóla á Akureyri 1935-1936, í Reykjavik 1937-1939. Við störf og nám í skipaverkfræði í Kaupmannahöfn 1940-1947. Við skipaverkfræðistörf, hönnun stálskipa og stálsmíðarekstur í Helsingör Skibsværft í Danmörku, á togaraskipasmíðastöð í Beverley í Englandi og Stálsmiðjunni í Reykjavík árin 1947-1954. Skipaskoðunarstjóri 1954-1970. Siglingamálastjóri 1970-1985. Ráðstefnur um siglingamál erlendis 1954-1986. Forseti Alþjóðasiglingsmálastofnunar SÞ (IMO) í London 1969-1971. Hjálmar lærði einnig skipasmíðar en starfaði ekki sem slíkur nema þegar hann var að læra fagið. Hann var þekktur áhugaljósmyndari og hafa komið út bækur með myndum hans. Nöfn, fæðingarár, fæðingarstaður og atvinna foreldra: Bárður G.Tómasson, skipaverkfræðingur, f. Hjöllum í Skötufirði við Ísafjarðardjúp 1885, d. 1961. Móðir Filippía Hjálmarsdóttir, f. Fremri Bakka í Langadal við Ísafjarðardjúp 1885, d. nóv.1918 (úr spönsku veikinni). Heimildir: Munnlegar upplýsingar Hjálmars R. Bárðarsonar 23. mars 2007. Ágúst Ólafur Georgsson skráði. ÞÞ 14976. http://mbl.is/mm/gagnasafn/minningaleit.html?winsize=30&offset=0&searchid=0&minningaleit=hj%E1lmar+b%E1r%F0arson&month_from=1&year_from=2006&month_to=2&year_to=2010&is_minningaleit=Leita&searchtype=prox. (Skoðað 28. jan. 2010).
Tengd aðföng