Finnur Johnson Jónsson
6.3.1868 - 21.1.1955
Staða
Ritstjóri
Staður
Staður: Melar 1, 500-Stað, Húnaþing vestra, Hrútafjörður, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Húnaþing vestra, Húnaþing vestra
Sveitarfélag 1950: Bæjarhreppur Strand., Hrútafjörður
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Foreldrar: Jón Jónsson bóndi á Melum og kona hans Sigurlaug Jónsdóttir.
Bóksali. Gerðist ritstjóri tímaritsins Lögberg í Vesturheimi.
„Hann var skýrleiksmaður hinn mesti, stundaði nám við Möðruvallaskóla, en fluttist til Winnipeg árið 1893 og kvæntist ári síðar Guðrúnu Ásgeirsdóttur ættaðri úr Borgarfirði hinum meiri, hæfileikakonu, vel að sér til munns og handa; þau eignuðust þrjú mannvænleg börn, Ásgeir, er féll í fyrri heimsstyrjöldinni, frú Önnu Duncan, sem búsett er í Antler í Saskatchewanfylkinu, og J. Ragnar Johnsons lögfræðing og ræðismann Íslands í Toronto. Konu sína misti Finnur árið 1947, en þremur árum áður var þeim haldið fjölment og virðulegt samsæti í tilefni af hálfrar aldar hjónabandsafmæli þeirra.
Foreldrar Finns voru þau Jón Jónsson bóndi á hinu kunna ættaróðali, Melum, og Sigurlaug Jónsdóttir; höfðu þau um langan aldur málaforustu með höndum í bygðarlagi sínu, voru bæði vel að sér ger og af gáfufólki komin; tvö systkini Finns urðu þjóðkunn vegna ritstarfa sinna, þ.au séra Jón í Stafafelli og frú Ingunn á Kornsá í Vatnsdal.
Lengstan hluta starfsævi sinnar í þessu landi starfaði Finnur við grávörufirma í þessari borg, en er hann lét af þeim starfa gaf hann sig við bókasölu og blaðamensku; hann var árlangt aðalritstjóri Lögbergs og í mörg ár meðritstjóri blaðsins; hann var ritfær vel og skyldurækinn um öll sín störf; iðjumaður var hann mikill og þess vegna kom hann tíðum meiru í verk en þeir, sem sprettharðari voru.
Finnur var góður samverkamaður og það engu síður þó maður sæi ekki ávalt auga til auga við hann um lífsskoðanir og ýmis mannfélagsmál; hann var vel heima í íslenzkum fornbókmentum og gat í sínum hóp verið manna fyndnastur í tilsvörum; hann tók allverulegan þátt í íslenzkum mannfélagsmálum, einkum þó í kirkjumálum, bæði sem féhirðist íslenzka lúterksa kirkjufélagsins og sem skrifari Fyrsta lúterska safnaðar; slíkum málum unni hann af heilum hug og helgaði þeim óskipta krafta.
Finnur Johnson lifði lífi hinna kyrlátu í landinu og að sama skapi varð ævikvöld hans friðsælt og fagurt. Útförin var gerð frá Fyrstu lútersku kikrju að báðum börnum hans viðstöddum og fjölmennum hópi vina. Dr. Valdimar J. Eylands flutti kveðjumál; Mrs. Lincoln Johnsons söng einsöng, en við hljóðfærið var Mrs. E .A. Ísfeld."
Heimildir:
https://timarit.is/page/2207598#page/n0/mode/2up
Tengd aðföng

