Ægir Ólafsson

10.3.1912 - 18.08.2005
Staða
Stórkaupmaður, Heildsali
Staður
Staður: Hlíðarhús 7, 112-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Grafarvogur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Stórkaupmaður, síðast búsettur í Reykjavík. Rak Mars Trading Co. í um 40 ár. Stundaði mikið viðskipti við austantjaldsríkin. Var á Vesturgötu 17, Reykjavík 1930. Ægir Ólafsson fæddist á Siglufirði 10. mars 1912. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir 18. ágúst 2005. Foreldrar: Ólafur Sigurðsson skipstjóri frá Flatey á Breiðafirði og Guðrún Baldvinsdóttir frá Siglunesi við Siglufjörð. Systkini Ægis eru Unnur, Eggert, Dröfn, Bára, Ólafur og Sigurður. Fyrri kona: Lára Helga Gunnarsdóttir fóstra. Þau eiga tvö börn, þau eru: 1) Guðrún Unnur kennari, f. 11.3. 1944. Börn hennar eru: a) Stefán, f. 26.6. 1966, synir hans eru Birgir Steinn, f. 9.9. 1992 og Steingrímur Dagur, f. 22.5. 2004, b) Sigurlaug, f. 30.7. 1967, sonur hennar er Stefán Erik, f. 21.11. 1997, og c) Ægir Gauti, f. 2.12. 1975. 2) Gunnar Ingi, starfar við þróunarhjálp í Bretlandi, f. 2.11. 1947. Börn hans eru; a) Guðrún Ýr, f. 24.9. 1967, börn hennar eru Atli Freyr, fr. 6.1. 1986, Gísli Rúnar, f. 18.1. 1993, og Hákon Logi, f. 30.7.2002, b) Inga Hrefna, f. 21.4. 1976, sonur hennar er Hákon, f. 16.4. 2004, og c) Atli, f. 23.7. 1979. Seinni kona: Jarmila Vera Friðriksdóttir frá Prag, d. 1991. Hún átti fyrir tvö börn, þau Benno Georg listmálara, f. 7.5. 1945, og Marcelu Margréti, sem starfar hjá Ríkisskattstjóra, f. 14.9. 1946. Gekk Ægir þeim í föðurstað. Benno er kvæntur Unni Jónu Sigurjónsdóttur, dóttir þeirra er Súsanna, f. 4.3. 1974, sonur hennar er Óliver, f. 13.7. 1999. Fyrir átti Benno Helgu, f. 19.12. 1965, börn hennar eru Guðrún, f. 2.4. 1996, Kristgeir, f. 24.8. 1998, og Kristrún, f. 4.2. 2000. Sonur Marcelu er Valgeir Ægir, f. 31.10. 1996, börn hans eru Gauti Jan, f. 10.2. 1988, og Freyja Hlín, f. 21.2. 1995. Sambýlismaður Marcelu er Helgi Bergmann Ingólfsson. Börn Ægis og Jarmilu eru: 1) Ólafur Friðrik verslunarmaður, f. 5.10. 1958, kvæntur Guðrúnu Lindu Einarsdóttur. Börn þeirra eru Andri Snær, f. 24.9. 1989, Vera Sjöfn, f. 2.03. 1992, og Silja Sigrún, f. 18.12. 1998. 2) Eva Guðrún hárgreiðslukona, f. 23.6. 1966, gift Jóni Oddi Davíðssyni, börn þeirra eru Árni Þór, f. 25.3. 1987, og Telma María, f. 10.12. 1992. Heimildir: https://www.islendingabok.is/search https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1034590/?item_num=1&searchid=57f49bccc44fc17da6cbce39de653ec3b4be2527
Tengd aðföng