Þórhallur Jóhannesson
18.6.1887 - 18.4.1924
Staða
Læknir
Staður
Staður: Sauðanes, Langanesbyggð, Langanes, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Langanesbyggð, Langanesbyggð
Sveitarfélag 1950: Sauðaneshreppur
Staður: Dalhús, 685-Bakkafirði, Langanesbyggð, Bakkafjörður, Ísland
Sveitarfélag 1950: Skeggjastaðahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
„Þórhallur Jóhannesson f. í Dalhúsum við Bakkafjörð 18. júní 1887, d. á Ísafirði 18. apríl 1924. For. Jóhannes (13. mars 1848/14. apríl 1921), bóndi Dalhúsum Bjarnason og k. h. Friðjóna (13. ágúst 1857/14. mars 1912) Friðbjarnardóttir frá Efri-Hólum í Núpasveit Eiríkssonar. Stúd. Rvík 1910, eink. 6,1 (79 st.). Cand. med. Hísl. s. 1915, 1. eink. (172 [og 1/3] st.). Héraðsl. í Þistilfjarðarhéraði ágúst 1915-okt. 1916. Kand. Rigshosp. fæðd. jan. og okt. 1917, Odense Amts og Bys Sgh. febr.-sept. s. á. Héraðsl. í Þistilfjarðarhéraði ágúst 1917-febr. 1924 og þjónaði jafnframt hluta Öxarfjarðarhéraðs nóv. 1918. Sk. héraðsl. í Flateyrarhéraði frá apríl 1924. Lést á Ísafirði á leiðinni vestur.
K. 13. júlí 1915 Ágústa (16. ágúst 1895) Jóhannsdóttir vinnum. í Laugarási er síðar fluttist til Markerville í Albertfylki í Kanada, Bjarnasonar og k. h. Vilborgar Aronsdóttur. B. þ. Sturla (12. apríl 1919/21. júlí 1920).
Þórhallur var móðurbróðir Jóns Gunnlaugssonar og Jóns Karlssonar lækna.“
Skólaspjald, Skóli Ásgríms Magnússonar 1909 - 1910, kennarar og nemendur.
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 25505-28521. (1969-1974);
Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands Mms. 34346,15-37440;
Læknar á Íslandi. 1984. Ristjóri: Gísli Ólafsson. Læknafélag Íslands/Ísafoldarprentsmiðja hf. Reykjavík (bls. 707-708)
Tengd aðföng




