Gyða Jónsdóttir Wells

13.6.1943
Staða
Listakona, Auglýsingateiknari, Listamaður
Staður
Staður: Sóleyjargata 1, 300-Akranesi, Akraneskaupstaður Núverandi sveitarfélag: Akraneskaupstaður, Akraneskaupstaður Sveitarfélag 1950: Akranes
Annað nafn
Gyða L. Jónsdóttir
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Gyða L. Jónsdóttir Wells er bæjarlistamaður Akraness árið 2015. Gyða L. Jónsdóttir Wells er Skagamaður í húð og hár en hún hefur meðal annars haldið sýningar í Kaupmannahöfn, Vínarborg, Birmingham, í Reykjavík og á Akranesi. Gyða vinnur bæði stóra og litla skúlptúra og málverk í vinnuaðstöðu sinni í Sementsverksmiðjunni á Akranesi, þar sem hún starfar ásamt fleiri listamönnum. Saman kalla þau sig Samsteypuna. Gyða L. Jónsdóttir Wells átti og rak Tessera Designs í London á árunum 1980 – 1997. Á þeim tíma hannaði hún flísar fyrir einkahöll Soldánsins af Brunei í London fyrir 11 baðherbergi auk þess sem hún framleiddi skreytingar á fjölmargar lestarstöðvar og aðrar opinberar byggingar í London og nágrenni. Það verk Gyðu sem er Skagamönnum að bestu kunnugt er  stór brjóstmynd af Haraldi Böðvarssyni og Ingunni Sveinsdóttur sem stendur við Vesturgötuna en einnig hefur hún mótað brjóstmyndir af Pétri Ottesen og Hálfdáni Sveinsyni sem eru varðveittar á Byggðasafninu að Görðum á Akranesi en geta má þess að það var faðir hennar, sr. Jón M. Guðjónsson sem stofnaði byggðasafnið á Akranesi. Gyða L. Jónsdóttir Wells stundaði nám við Handíða og Myndlistaskólann í Reykjavík, Art Instruction School  í USA, Sir John Cass College í London, Central School of Art í London, Konunglegu Lista Akademiuna í Kaupmannahöfn og Konunglegu Porstulínsverksmiðjuna í Kaupmannahöfn. Hún var um tíma með vinnustofu og sýningarsal í Brautarholti í Reykjavík ásamt fleiri listamönnum og hefur hannað fjölda mynda fyrir bókakápur og teikningar í barnabækur. Gyða segist fyrst og fremst vera myndhöggvari, þar sé hún á heimavelli.  Heimildir: Gyða sjálf.
Tengd aðföng