Sigrún Sigurðardóttir

23.11.1920 - 26.12.2008
Staða
Saumakona, Húsmóðir, Matráðskona
Staður
Staður: Gvendareyjar, 371-Búðardal, Dalabyggð, Skógarströnd, Ísland Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð Sveitarfélag 1950: Garðahreppur Núverandi sveitarfélag: Garðabær, Garðabær Staður: Þernunes 9, 210-Garðabæ, Garðabær Staður: Innra-Leiti, 371-Búðardal, Dalabyggð, Skógarströnd, Ísland Sveitarfélag 1950: Skógarstrandarhreppur Staður: Borgarspítali, Landspítali, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Fossvogur, Ísland Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Sigrún Sigurðardóttir (Rúna). Fædd 23. nóvember 1920 á Innra-Leiti, dáin 26. desember 2008 á Landspítalanum í Fossvogi. Ólst upp í Gvendareyjum á Breiðafirði frá sjö ára aldri. Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1939-40. Vinnukona á Staðarfelli sumarið 1942. Húsmóðir í Reykjavík 1946-1951, í Kópavogi 1951-66, í Stykkishólmi 1966-1968, í Reykjavík 1968-1983 og í Garðabæ frá 1983. Vann að ýmsum störfum utan heimilis, mikið við saumaskap og fatagerð, m.a. hjá verksmiðjunni Dúk og víðar, við flatkökugerð hjá Bakaríi Friðriks Haraldssonar í Kópavogi, í mötuneytum á Hrafnistu í Reykjavík og hjá Pósti og síma við Austurvöll og matráðskona á Póstgíróstofunni við Ármúla. For. Sigurður Einarsson (1890-1983) og Magnúsína Guðrún Björnsdóttir (1891-1973) á Borgum, Innra-Leiti og Litla-Langadal á Skógarströnd (1913-28) og í Gvendareyjum á Breiðafirði 1928-46, síðar í Ytri-Njarðvík og síðast í Reykjavík. Systkini Sigrúnar voru Guðrún (1915-), Margrét (1916-2011), Kristín Stefanía (1917-2012), Guðný (1919-1919), Jón (1923-2000), Sólveig (1925-2012) og Einar (1933). Sambýlismaður (1946-1983) Rúnu var Bergsveinn Breiðfjörð Gíslason (1921-2002) skipa- og bryggjusmiður úr Ólafsey.  Bergsveinn og Sigrún slitu samvistir. Börn þeirra eru Brynja (1947), Sigurður (1949), Lára (1953), Alma (1955) og Freyja (1958). Heimildir: Staðarfellsskóli 40 ára. Bls. 24. Minning - Sigrún Sigurðardóttir. Morgunblaðið 8. janúar 2009. Einar Sigurðsson. 2013. Bernskudagar í Breiðafirði. Bls. 9, 44, 77, 83-85, 93, 107 og 111.
Tengd aðföng